Wiki fyrir reglur í rally
Prenta | Leita:

Heim

Á eftir að líta á
Almennar reglur
Gengi X

Á eftir að líta betur á
Gengi J - Upphaf
Gengi J - 1
Gengi J - 2
Góð- og sparakstur
4x4 non-turbo

Búnar til samþykkis

Samþykktar
Eindrifsflokkur
Nýliði
Gengi N

Regl20004x 4

4x4 non turbo flokkur

Reglur þessar gilda fyrir keppni til 4x4 non turbo flokksmeistara í ralli. Gjaldgengar keppnir eru allar keppnir á keppnisdagatali akstursíþróttanefndar ÍSÍ, allar keppnir telja til stiga. Stigagjöf skal vera háttað eins og stigagjöf til Íslandsmeistara í ralli er háttað. Strangt eftirlit skal haft með því að bifreiðar í þessum flokki séu samkvæmt reglum.

1. Skilgreining
Hæfar bifreiðar í flokknum teljast þær sem skráðar eru með minna en 2000 rúmsentimetra slagrými vélar, drif á báðum öxlum og hafa verið skráðar sem venjulegar fólksbifreiðar hjá Umferðarstofu. Að auki teljast hæfar bifreiðar þær sem uppfylla skilyrði um FIA um gengi N og hafa sömu takmarkanir á vélarstærð og drifi.

Allar breytingar sem ekki eru leyfðar samkvæmt reglum þessum eru bannaðar.

2. Hæfir keppendur
Hæfir keppendur eru allir þeir sem hafa gilt keppnisskírteini Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA í akstursíþróttum hérlendis.

3. Vél
Hámarskvélarstærð 2000cc. Vélarstærðir bifreiða með túrbínu eða Wankel vél eru uppreiknaðar samkvæmt reiknistuðli FIA (1,7 fyrir vélar með túrbínu). Eftirtalið er frjálst:

Inngjafarbarkar, vatnslás, kerti, kertaþræðir, snúningstakmarkarar, loftsíur, eldsneytissíur, skvettibúnaður í olíupönnu og rafstýribúnaður.

Allar aðrar breytingar á mótor eru bannaðar. Hámarkshestöfl eru 160 hestöfl samkvæmt framleiðanda.

Leyfilegt er að stækka eða minnka vél innan sömu bíltegundar og undirtegundar, þó með þeim takmörkunum að vélin má ekki vera úr nýrri árgerð en bifreiðin sem hún fer í. Til dæmis er leyfilegt að setja 2000cc vél í 1600cc boddyskel ef bíllinn hefur verið fluttur þannig inn af umboði með 2000cc mótor.

Heimilt er að skipta um mótorpúða en staðsetning og fjöldi skal vera óbreyttur.

Óheimilt er að bora út vél meira en 0,5mm.

4. Stýrisbúnaður
Stýrisbúnaður skal vera óbreyttur en þó er heimilt að skipta um stýrishjól.

5. Gírkassi
Óbreyttur miðað við upphaflegan gírkassa bifreiðar.

6. Drifrás
Óbreytt miðuð við upphaflega drifrás bifreiðar, þó er heimilt að nota hvaða tengslisdisk sem er. Drif skal vera á öllum hjólum. Aðeins eru leyfðar upprunalegar driflæsingar. Bíll þarf að hafa komið með driflæsingu.

7. Drif
Drifhlutföll skulu vera upprunaleg.

8. Yfirbygging
Útlit og lögun skal vera óbreytt miðað við upphaflegt útlit bifreiðar. Styrking yfirbyggingar er frjáls. Óheimilt er að fjarlægja efni úr yfirbyggingu, né setja annað í staðinn nema um jafnþungt efni sé að ræða. Sílsalistar, vindskeið og aurhlífar eru frjálsar. Allar rúður skulu vera upprunalegar.

Sé notuð yfirbygging (skel) bifreiðar með öflugri vél en leyfileg er samkvæmt reglum þessum, má hún ekki vera léttari en framleiðsluþyngd og aðeins nota yfirbygginguna (skelina), en ekki aðra hluti. Dæmi: Subaru Impreza GT skel má ekki vera léttari en GL skel.

9. Innréttingar
Innréttingu má fjarlægja að undanskildu mælaborði. Setja á keppnisstóla í bifreiðina óháð þyngd þeirra. Rúðuupphalarar í framhurðum skulu vera til staðar og virka.

10. Fjöðrun
Fjöðrun er frjáls, en upphaflega festipunkta við yfirbyggingu, þar með talið festibitar, mótorbiti og þess háttar verður að nota. Skekkjumörk eru 20 millimetrar nema ofan á Macpherson fjöðrunarturni þá 50 millimetrar.

11. Hemlar
Skulu vera upprunalegar þó er leyfilegt að skipta út skálabremsum að aftan í staðinn fyrir diskabremsur. Nota má keppnisbremsuvökva og keppnisbremsuklossa og eða -borða. Sjá reglur um gengi N.

12. Sporvídd og hjólhaf
Óbreytt miðað við upphafleg mál á bifreiðinni. Skekkjumörk eru 40 millimetrar í báðar áttir frá þessum gildum.

13. Felgur
Frjálsar að stærð og gerð.

14. Hjólbarðar
Frjáls að stærð og gerð.

15. Hjólabúnaður
Skal vera upprunalegur.

16. Eldsneytistankur
Skal vera upphaflegur, en bensíndæla er frjáls.

17. Útblásturskerfi
Útblásturskerfi er frjálst frá pústgrein, en pústgrein telst til vélar.

18. Rafkerfi
Rafkerfi er frjálst, en höfuðrofi skal vera til staðar samkvæmt reglum Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA.

19. Öryggisbúnaður
Allur öryggisbúnaður skal vera samkvæmt reglur Akstursíþróttanefndar ÍSÍ/LÍA.

Innskráning - Prenta - Leita