Wiki fyrir reglur í rally
Prenta | Leita:

Heim

Á eftir að líta á
Almennar reglur
Gengi X

Á eftir að líta betur á
Gengi J - Upphaf
Gengi J - 1
Gengi J - 2
Góð- og sparakstur
4x4 non-turbo

Búnar til samþykkis

Samþykktar
Eindrifsflokkur
Nýliði
Gengi N

Alm Regl

ALMENNAR REGLUR

Vantar

1. Skilgreining
Hæfar bifreiðar í flokknum teljast þær sem skráðar hafa verið sem venjulegar fólksbifreiðar hjá Bifreiðaskoðun Íslands hf og hafa verið framleiddar í að minnsta kosti fimmtíu eintökum. Bifreiðarnar skulu vera byggðar úr einu samheldu boddíi, en ekki samsettar úr tveimur erða fleiri mismunandi boddíum eða boddíhlutum sem hægt er að bolta í sundur. Þetta þýðir að blæjubílar og “hard top” bílar eru bannaðir. Bifreiðar sem hafa haft akstursheimildir samkvæmt gömlu gengi B reglunum teljast gjaldgengar, enda uppfylli þær gengis B reglum.

2. MINNSTA ÞYNGD
Þyngd er í hlutfalli við slagrými vélar og samkvæmt meðfylgjandi töflu:

frá cm3til cm3kgfrá cm3til cm3kg
01000620300135001100
10011300700350140001180
13011600780400145001260
16012000860450150001340
20012500940500155001420
2501300010205501 1500

Þyngd er miðuð við eigin þyngd bifreiðar að meðtöldum öryggisbúnaði. Vigtað án áhafnar, varahjóla, verkfæra, lausra hluta og eldsneytis.

3. VÉL
Hámarksafl vélar skal vera minna en 300 hestöfl. Aðeins ein vél má vera í hverri bifreið. Heimilt er að nota hvaða tegund vélar sem er, svo framarlega að hún brenni vejulegu eldsneyti, sem fæst á almennum útsölustöðum. Bannað er að nota nitro gas oþh Slagrými véla með forþjöppu og/eða Wankel vél skal margfalda með viðeigandi stuðlum samkvæmt reiknireglum FIA.

4. HJÓLABÚNAÐUR
Hjólbarðar skulu ekki vera meira en þrjátíuogein tomma í þvermál og mesta breidd felgu tíu tommur. Fjöldi hjóla skal vera fjögur á tveimur aðskildum öxlum.

5. HEMLABÚNAÐUR
Skylda er að hafa tvöfalt hemlakerfi og diskabremsur að framan. Leyfilegt er að nota handbremsu sem fer af sjálf.

6. YFIRBYGGING
Yfirbygging má ekki vera úr tveimur eða fleiri tegundum bifreiða. Sé bitum að framan breytt verulega, skal þess gætt að brotalöm verði fyrir framan mótorbita og fjöðrunarbita. Leyfilegt er að létta bifreiðar, svo framarlega sem grein 2 er uppfyllt og að það komi ekki niður á styrk hennar. Nota má bretti, vélarhlíf, hurðir, vindskeiðar og brettavíkkanir úr léttmálmi eða plastefnum. Framrúða skal vera úr lamineruðu gleri, en aðrar rúður eru frjálsar.

7. STÝRISBÚNAÐUR
Stýrisbúnaður skal standast reglur íslenskra umferðarlaga og reglugerða.

8. DRIFBÚNAÐUR
Gírkassi og dirflæsingar eru frjálsar. Drifhjól mega vera að aftan, framan eða bæði.

9. RAFKERFI
Rafkerfi er frjálst, en skal uppfylla eðlilegar öryggiskröfur. Þó verður að vera útsláttarrofi, á aðgengilegum stað, sem stöðvar vél og rýfur straum frá rafgeymi.

10. ELDSNEYTISKERFI
Eldsneytisgeymir skal tryggilega festur og aðskilinn frá farþegarými. Sé eldsneytisgeymirinn undir bifreiðinni skal vera hlíf undir honum. Eldsneytislagnir skulu vera samkvæmt öryggiskröfum FIA.

11. ÖRYGGISBÚNAÐUR
Veltibúr skal vera samkvæmt reglum FIA að viðbættum hliðarstífum meðfram sætum og skástífu í aðalboga. Bifreiðin skal búin körfustólum.

Innskráning - Prenta - Leita