Hjólaleiðir

Umhverfis- og samgöngunefnd Kópavogs óskar eftir athugasemdum við þær leiðir sem lagðar hafa verið til sem hjólaleiðir. Í kjölfarið verður skoðað hvað hentar á hverjum stað fyrir sig s.s. sér hjólastígar, stígar aðgreindir með merkingum eða hjólastígar á götum. Allar ábendingar eru vel þegnar.

Til að senda inn athugasemd þarf að smella á hlekkinn "senda inn athugasemd" neðst á síðunni eða senda beint tölvupóst á holmfridurth(hjá)kopavogur.is.

Á valstikunni hér til hægri má skoða stíga í hverfum bæjarins á korti, en merkingar á kortum eru svona:

Skýringar:  
Stofnstígur
Tengistígur
Fyrirhugaður stígur
Tenging milli sveitarfélaga
Brú eða undirgöng