Eiturefni í sígarettureyk og tóbaksreyk eru meira en 4000 efnasambönd, þar af yfir 50 sem geta valdið krabbameini.
Vissir þú að öll þessi efni eru í sígarettureyk
AMMONÍAK - mest notað til að hreinsa klósett.
ARSENIK - bragðlaust hvítt eiturefni, mest notað í iðnaði.
ASETON - notað til að fjarlægja naglalakk.
BENSÓPYREN - getur dregið úr frjósemi og skaðað barn í móðurkviði.
BLÁSÝRA - banvænt eitur
BRENNISTEINNSVETNI - mjög eitrað við innöndun
EDIKSÝRA - myndast við gerjun.
ELDFLAUGAELDSNEITI
KOLSÝRINGUR - eitrað við innöndun. Hætta á alvarlegu heilsutjóni við langvarandi notkun. Getur skaðað barn í móðukviði.
KVEIKJARABENSÍN
KVIKASILFUR
MÖLFLUGNAEITUR
NIKÓTÍN - eitrað við inntöku. Einn dropi drepur mús.
PÓLON 210 - mjög geislavirkt og getur valdið krabbameini.
VINÝLKLÓRÍÐ - getur valdið krabbameini.
ROTTUEITUR
SKORDÝRAEITUR